Skíða – guðsþjónusta í Geilo

Útiguðsþjónusta verður í Bruslettstølen í Geilo sunnudaginn 10. mars kl.12. Guðsþjónustan er í samstarfi við norsku kirkjuna og skátana í Geilo. Gert verðu snjó-altari og setið verður á snjóstólum svo það getur verið gott að taka með sér setu. Bruslettstølen er vel þekkt skíðasvæði og eru allir velkomnir jafnt fótgangandi sem skíðandi. Komið endilega í […]

Read More »

Íhugunarmessa í Nordberg kirkju

Íhugunarmessa eða Taizé messa verðurí Nordberg kirkju sunnudaginn 3. mars kl. 14.  Að venju verður mikil tónlistarveisla. Berglind Magnúsdóttir syngur, Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og Ískórinn syngur og leiðir messusvör undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Altarisganga. Fermingarbörn aðstoða við helgihald og undirbúning allan. Organisti er Peggy Jenset Lous. Íslendingafélagið sér um kaffikræsingar eftir messuna í […]

Read More »

Heilsuþema á föstunni – þú ert velkomin/nn í hópinn!

Í tilefni föstunnar bjóðum við þér að taka þatt í skemmtulegum hópi sem ætlar að minnast föstunnar í orði og verki fjóra sunnudaga í röð. Hópurinn hittist klukkan 11.30 sunnudagana 3., 10., 17. og 24. mars við Sognsvatn í Ósló. Leiðbeinandi og þjálfari hópsins er Valdimar Svavarsson ráðgjafi hjá Hugur og heilsa – ráðgjöf. Hann […]

Read More »

Alþjóðlegur bænadagur kvenna 1.mars

Föstudaginn 1. mars n.k er alþjóðlegur bænadagur kvenna.  Konur um allan heim safnast saman til að biðja fyrir hver annarri og fyrir heiminum. Í ár eru það konur frá Frakklandi sem undirbúa bænastund sem þýdd er yfir á mörg tungumál. Yfirskrift dagsins er tekin úr Matteusarguðspjalli 25.35 „..gestur var ég og þér hýstuð mig“ (I […]

Read More »

Fyrsta skírnin í kapellu Ólafíustofu

Á laugardaginn var Freyja Rún Sveinsdóttir skirð í Ólafíustofu. Þetta var fyrsta skírnin sem fór fram í litlu kapellu okkar Íslendinga í Pilestredet Park. Í notalegu og hlýlegu andrúmslofti með foreldrum, stóra bróður, ömmu og nokkrum vinum svaf Freyja Rún i gegnum alla athöfnina og lét sér ekki bregða þegar vatni var ausið á hárfagran […]

Read More »

Eldri borgarar 60+

Fimmtudaginn 14. febrúar kl. 12 verður spila samkoma í Ólafíustofu og flottir vinningar í boði. Við ætlum einnig að velja nafn á hópinn okkar og eru nokkrar tillögur komnar í hús. Verið hjartanlega velkomin, María og Einar.

Read More »