Hjóna- og paranámskeið eru haldin á vegum safnaðarins. Reynt er að bjóða upp á þetta námskeið einu sinni á ári. Kennd eru fimm tungumál ástarinnar, fjallað um leiðir til að eiga uppbyggileg samskipti og því velt upp hver sé tilgangur lífsins.
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur eru haldin reglulega um landið. Námskeiðin hafa verið haldin í Ósló, Sandefjord, Bergen, Stavanger og Tromsø. Eins hafa komið beiðnir inn í saumaklúbba og aðra samfélagshópa um að halda námskeið.
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir karla hefur verið haldið einu sinni og mun verða skipulagt ef beiðni um það berst og nægilega margir karlar skrá sig.
Konur eru konum bestar hefur verið kennt í tvígang af Margréti Ólöfu Magnúsdóttur.
Lífsýn og trú er námskeið sem kennt hefur verið yfir sjö vikna tímabil fram að páskum í Ólafíustofu. Ýmsir fyrirlesarar hafa komið að því námskeiði.
12 sporin – Andlegt ferðalag er samfylgd einstaklinga sem mynda sjálfstæðan hóp. Hópurinn skuldbindur sig til að hittast í 3, 6 eða 12 mánuði og vinna þann tíma með andlega líðan sína. Hóparnir eru sjálfstæðir og enginn einn leiðir eða stýrir. Ekki hefur náðst í nægilega stóran hóp til að geta farið af stað, en fyrir liggur nafnalisti og farið verður af stað um leið og nægur fjöldi næst.
Fyrirspurnir um námskeiðshald fyrir fullorðna má senda til sr.Ragnheiðar Karítasar Pétursdóttur, ( prestur@kirkjan.no ) eða sr.Lilju Kristinar Þorsteinsdóttur ( fraedsla@kirkjan.no)
__________________________________________________________________________________________________________
Það er oft spurt:
Kenn oss að biðja; sögðu lærisveinarnir við Jesú og hann kenndi þeim
“Faðir vor”
Matteusarguðspjall 6:9-13
Faðir vor[1], þú sem ert á himnum[2]
Helgist þitt nafn.[3] Til komi þitt ríki[4]
Verði þinn vilji,[5] svo á jörðu sem á himni
Gef oss í dag vort daglegt brauð[6]
Og fyrirgef oss vorar skuldir,[7] svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum[8]
Og eigi leið þú oss í freistni[9]. heldur frelsa oss frá illu[10]
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu.[11]Amen.[12]
Fleiri bænir
Matteusarguðspjall 7:7-8
Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýjið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. Því hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem knýr, mun upp lokið verða.
Lofgjörðarbæn
Við lofum Guð fyrir það hvað hann er góður og kærleiksríkur. Lofum hann fyrir sköpunarverkið, fyrir mátt hans og fyrir það að hann sendi son sinn JK til okkar og fyrir okkur.
Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu, þú hinn hæsti, að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur.Sl. 92:2-3
Fyrirbæn
Við biðjum fyrir fjölskyldunni okkar, vinum og vinkonum. Við biðjum fyrir þeim sem eru veikir, einmanna eða eiga á einhvern hátt erfitt. Við biðjum fyrir friði í heiminum. Við biðjum fyrir okkur sjálfum og þeim sem við viljum að Guð beini augum sínum að.
Þakkarbæn
Við þökkum Guði fyrir líf okkar, heilsu og hamingju. Við þökkum Guði fyrir að mega tala við hann og biðja til hans. Þökkum honum fyrir að við höfum allt sem við þurfum.
Þökkum Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. Sl.136:1
Bænavers
Vertu Guð faðir, faðir minn Verkin mín Drottinn þóknist þér.
í frelsarans Jesú nafni. Þau láttu allvel takast mér
Hönd þín leiði mig út og inn, Ávaxtasöm sé iðja mín,
Svo allri synd ég hafni. yfir mér hvíli blessun þín
Bænirnar mínar
Dæmi: Góði Guð, þú ert frábær. Viltu vaka yfir mér og fjölskyldunni minni. Viltu hjálpa henni/honum NN sem er svo veik/ur. Þakka þér fyrir að ég get farið í Vatnaskóg og fyrir það að mamma gaf mér nýjar buxur. Í Jesú blessaða nafni. Amen.
Lærið að biðja með hjartanu en ekki heilanum!!!
