Heilsuþema á föstunni – þú ert velkomin/nn í hópinn!

HópefliÍ tilefni föstunnar bjóðum við þér að taka þatt í skemmtulegum hópi sem ætlar að minnast föstunnar í orði og verki fjóra sunnudaga í röð.

Hópurinn hittist klukkan 11.30 sunnudagana 3., 10., 17. og 24. mars við Sognsvatn í Ósló. Leiðbeinandi og þjálfari hópsins er Valdimar Svavarsson ráðgjafi hjá Hugur og heilsa – ráðgjöf. Hann mun sjá til þess að allir fái hreyfingu við sitt hæfi ásamt fróðleigum upplýsingum um neysluvenjur, markmiðsetningu og skipulag sem gæti nýst hverjum og einum til þess að ná settum markmiðum. Fyrst og fremst er um skemmtilega samveru að ræða sem stendur öllum opin sem treysta sér í létta hreyfingu og útivist og vilja skemmta sér með öðru fólki.

Þú getur skráð þið til leiks og fengið svör við spurningum með því að hafa samband við Valdimar Svavarsson í síma 98819926.