Íhugunarmessa í Nordberg kirkju

IMG_1079Íhugunarmessa eða Taizé messa verðurí Nordberg kirkju sunnudaginn 3. mars kl. 14.  Að venju verður mikil tónlistarveisla. Berglind Magnúsdóttir syngur, Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og Ískórinn syngur og leiðir messusvör undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Altarisganga. Fermingarbörn aðstoða við helgihald og undirbúning allan. Organisti er Peggy Jenset Lous.

Íslendingafélagið sér um kaffikræsingar eftir messuna í safnaðarheimilinu.

Á föstutímanum, sem er tímabilið fyrir páska í kirkjuárinu, verður þennan sunnudag staldrað við þau þungu þemu; synd og skömm. Munurinn á þessu tvennu verður íhugaður i predikuninni og þá sérstaklega hvaða áhrif þau hafa á lífsgæði manneskjunnar sem og nauðsyn þeirra í siðvitund mannsins í tengslum við Guð og annað fólk.

Minni á heilsuþema á föstu (sjá sér auglýsingu á síðunni).  Upplagt að hressa upp á heilsuna og mæta svo í messu á eftir.