Föstudaginn 1. mars n.k er alþjóðlegur bænadagur kvenna. Konur um allan heim safnast saman til að biðja fyrir hver annarri og fyrir heiminum. Í ár eru það konur frá Frakklandi sem undirbúa bænastund sem þýdd er yfir á mörg tungumál. Yfirskrift dagsins er tekin úr Matteusarguðspjalli 25.35 „..gestur var ég og þér hýstuð mig“ (I was a Stranger and You Welcomed Me)
Í Nordberg kirkju tekur Íslenski söfnuðurinn þátt í deginum og verður beðið fyrir söfnuðinum okkar. Bænastundin byrjar kl.18.30 í Nordberg kirkju og eru allir hjartanlega velkomnir, bæði konur og karlar.
Bænasamkoman er samkirkjuleg þar sem konur og karlar úr mörgum kirkjudeildum sameinast í bæn. Á Íslandi verður bænadagurinn haldinn í Aðventkirkjunni sama dag kl.20 þar sem biskup Íslands Frú Agnes M. Sigurðardóttir verður sérstakur gestur.

