Á laugardaginn var Freyja Rún Sveinsdóttir skirð í Ólafíustofu. Þetta var fyrsta skírnin sem fór fram í litlu kapellu okkar Íslendinga í Pilestredet Park. Í notalegu og hlýlegu andrúmslofti með foreldrum, stóra bróður, ömmu og nokkrum vinum svaf Freyja Rún i gegnum alla athöfnina og lét sér ekki bregða þegar vatni var ausið á hárfagran kollinn. Foreldrar Freyju Rúnar eru Sveinn Harðarson og Sigurrós Ásta Jakobsdóttir. Við óskum foreldrunum, Sindra stóra bróður og ástvinum öllum hjartanlega til hamingju og biðjum þeim blessunar Guðs. Peggy Lous Jenset var organisti og sr. Arna Grétarsdóttir þjónaði

