Aðventuhátíð í Nordberg kirkju 30. nóvember

Sunnudaginn 30. nóvember kl. 14:00 verður haldin aðventuhátíð í Nordberg kirkju Osló. (Kringsjågrenda 1, 0861 Oslo) Sérstakir gestir okkar í ár verða Gunnar Þórðarsson sem spilar og syngur og Hr. Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup Íslands, sem flytur hátíðarræðu. Hjörleifur Valsson mun spila á fiðluna og Ískórinn syngur fyrir hátíðargesti. Organisti er Ole Johannes Kosberg. Sunnudagaskólaleiðtogar verða með […]

Read More »

Unglingahittingur í Osló, föstudaginn 14. nóvember

Unglingahittingur í Osló næsta föstudag, 14. nóvember, frá kl. 17.30-20:00. Nú er skammdegið komið með tilheyrandi myrkri svo það er tilvalið að spila varúlf og fara í leiki.  Við hittumst í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20 í Osló. Við hvetjum fermingarbörn til að mæta og minnum einnig á facebooksíðu unglingastarfsins „Æskulýðshópur Íslenska safnaðarins í Noregi“ en […]

Read More »

60 ára og eldri hittast fimmtudaginn 13. nóvember

Fimmtudaginn 13. nóvember hittast 60 ára og eldri kl. 12.15 á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20, í Osló. Við hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund. Við borðum saman hádegisverð og fáum okkur kaffi og konfekt á meðan við spjöllum og eigum góða stund saman. Við hlökkum til að sjá ykkur. Ása Laufey, Osvald […]

Read More »

Málþing og tónleikar í tilefni af 400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar

Laugardaginn 15. nóvember frá kl. 9.30-17, verður málþing og tónleikar í Norges musikkhøgskole (Auditoriet i 2. hus), í tilefni af 400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar.   Ævi Hallgríms var á margan hátt óvenjuleg en ljóð hans og sálmar eiga sér djúpar rætur í sögu og menningu Íslendinga. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og við hvetjum alla […]

Read More »

Starfskraftur í ræstingar

Óskum eftir starfskrafti til að sjá um þrif í Ólafíustofu. Um er að ræða 6 tíma á viku sem unnir eru á þriðjudögum og föstudögum. Upplýsingar í síma 22360140 og 40074099 á skrifstofustíma. Leitum eftir starfskrafti sem er vanur þrifum og hefur frumkvæði. Þarf að geta byrjað sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 30.október. Umsóknir sendist […]

Read More »

Allra heilagra messa – minning látinna á sunnudaginn í Nordberg kirkju kl.14

Allra heilagra messa verður sunnudaginn 2. nóvember kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari og Ása Laufey Sæmundsdóttir guðfræðingur og fræðslufulltrúi aðstoðar við helgihald ásamt fermingarbörnum og messuþjónum. Messuþjónar eru Osvald Kratch og Elsa Þórðardóttir. Ískórinn syngur að venju undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Organisti er Ole Johannes. Altarisganga og minningarljós tendruð. […]

Read More »