Unglingahittingur í Osló, föstudaginn 14. nóvember

imagesB7D4JNN2

Unglingahittingur í Osló næsta föstudag, 14. nóvember, frá kl. 17.30-20:00. Nú er skammdegið komið með tilheyrandi myrkri svo það er tilvalið að spila varúlf og fara í leiki. 

Við hittumst í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20 í Osló.

Við hvetjum fermingarbörn til að mæta og minnum einnig á facebooksíðu unglingastarfsins

„Æskulýðshópur Íslenska safnaðarins í Noregi“ en þar er hægt að fylgjast með því sem er að gerast í unglingastarfinu hjá okkur. En við erum með virkt æskulýðsstarf á fleiri stöðum á landinu.

Hlökkum til að sjá ykkur, Ása Laufey, Guðjón, Ruth og Leó.