Sunnudaginn 30. nóvember kl. 14:00 verður haldin aðventuhátíð í Nordberg kirkju Osló. (Kringsjågrenda 1, 0861 Oslo) Sérstakir gestir okkar í ár verða Gunnar Þórðarsson sem spilar og syngur og Hr. Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup Íslands, sem flytur hátíðarræðu. Hjörleifur Valsson mun spila á fiðluna og Ískórinn syngur fyrir hátíðargesti. Organisti er Ole Johannes Kosberg. Sunnudagaskólaleiðtogar verða með barnahorn í anddyrinu þar sem verður föndrað jólaföndur. Í lok hátíðar verður boðið upp á kaffi og kökur sem Íslendingafélagið í Osló hefur umsjón með fyrir hönd safnaðarins.
Verið öll hjartanlega velkomin.
