In memoriam – Minningardagur um Ólafíu Jóhannsdóttur 22. október

Miðvikudaginn 22. október n.k. sér listanefnd íslenska safnaðarins í Noregi um dagskrá í Ólafíustofu á milli kl 19:00 og 21:00. Sr. Arna Grétarsdóttir verður með hugvekju í upphafi dagsskrár ásamt Ásu Laufeyju færðslufulltrúa. Unglingarnir í Æskulýðsstarfinu aðstoða við stundina. Ólafía var merk kona sem vann fórnfúst starf á strætum Óslóborgar og hjálpaði vændiskonum, áfengissjúkum og […]

Read More »

60 ára og eldri hittast í Ólafíustofu

Við ætlum að hittast n.k. fimmtudag, 9. október kl. 12:15. Við  hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund. Eftir það borðum við saman hádegisverð og fáum okkur kaffi og köku. Við hittumst á skrifstofu íslenska safnaðarins í Pilestredet Park 20 í Ósló. Allir 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir. Ása Laufey, Osvald og Einar.

Read More »

Guðsþjónusta 5.október í Nordberg kirkju kl.14

Sameiginleg guðsþjónusta íslenska safnaðarins í Noregi og Nordberg safnaðar verður sunnudaginn 5. október n.k kl.14.  Prestar safnaðanna sr. Egil Stray Nordberg og sr. Arna Grétarsdóttir munu leiða guðsþjónustuna ásamt messuþjónum.  Messan fer fram á íslensku og norsku og sungnir verða sálmar á báðum tungumálum. Ískórinn mun syngja að venju undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og […]

Read More »

Samverustund hjá 60 ára og eldri í Ólafíustofu

Í hverjum mánuði í vetur munum við hittast og eiga góðar stundir saman eins og venja hefur verið síðustu ár. Fyrsti fundur eftir sumarfrí er n.k. fimmtudag, 11. september. Við hittumst kl. 12:00 og hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund. Eftir það borðum við saman hádegisverð og fáum okkur kaffi og konfekt. Við hittumst á […]

Read More »

Konur eru konum bestar – Námskeið í Sandefjord 12. september

Föstudaginn 12. september 2014 kl.17 – 20. Staðsetning: Sandar Menighetshus, Bjerggata 56, 3210 Sandefjord. Ókeypis er inn á námskeiðið og það er opið öllum konum 18 ára og eldri. Öllum velkomið að koma með á kaffiborðið. Námskeiðið miðar að því að byggja upp sjálfsmynd kvenna, fjalla um tilfinningar, samskipti, mörk og markmiðasetningu. Þetta er vettvangur til að kynnast […]

Read More »