Guðsþjónusta í Gamle Aker kirkju Ósló sunnudaginn 31. ágúst kl. 14

Sunnudaginn 31. ágúst kl. 14 verður guðsþjónusta í Gamle Aker kirkju. (Akersbakken 26) Sr. Ágúst Einarsson annast prestþjónustu ásamt Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur fræðslufulltrúa Íslenska safnaðarins í Noregi. Leiðtogar úr sunnudagaskólanum aðstoða við guðsþjónustuna. Ronja María Giljan Grímsdóttir syngur einsöng. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar. Íslendingafélagið sér um kirkjukaffi á eftir í safnaðarheimilinu (Akersbakken […]

Read More »

Kyrrðardagar í Utstein pilegrimsgard.

Dagana 1.-3. september n.k. mun Hr. Karl Sigurbjörnsson fyrrv. biskup Íslands leiða kyrrðardaga í Utstein pilgrimsgard, sem er rétt fyrir utan Stavanger. Dagskráin fer fram á norsku og verðið er 2000 kr. Innifalið í verðinu er gisting í einstaklingsherbergi og matur. Fyrir skráningu og nánari upplýsingar má senda póst á reidun@utsteinpilegrimsgard.no

Read More »

Fermingarskráning fyrir veturinn 2014-2015 er hafin

Skráning í fermingarfræðslu safnaðarins er hafin fyrir veturinn 2014-2015.  Foreldrar fermingarbarna sem vilja skrá börnin sín í fermingarfræðslu gera það rafrænt hér á heimasíðunni okkar, til hægri á síðunni undir „fermingarskráning“. Fermingarfræðslan saman stendur af tveimur helgarnámskeiðum í samstarfi við íslensku söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku.  Námskeiðin fara fram í Aah Stiftgaard í Svíðþjóð og […]

Read More »

Hátíðarhelgistund í tilefni 17. júní

17. júní hátíðarhöld Íslenska safnaðarins og Íslendingafélagsins í Osló verða haldin sunnudaginn 15. júní. Hátíðarhöldin byrja með hátíðarhelgistund í Nordberg kirkju kl.14 í umsjá Sr. Örnu Grétarsdóttur. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og hátíðarræðu flytur formaður Íslendingafélagsins í Osló, María Matthíasdóttir. Að helgistund lokinni verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Sunnudagaskólinn verður á […]

Read More »

Hátíðarmessa á annan í hvítasunnu – 20 ára messuafmæli

Hátíðarmessa verður í Nordberg kirkju á annan í hvítasunnu (9.júní) kl.14. Fermt verður í messunni. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson verður sérstakur gestur og mun predika og þjóna fyrir altari ásamt sr. Örnu. Það eru 20 ár liðin frá því að sr. Jón Dalbú söng fyrstu íslensku messuna hér í Oslo og þjónaði Íslendingum búsettum hérlendis. […]

Read More »