Hátíðarmessa verður í Nordberg kirkju á annan í hvítasunnu (9.júní) kl.14. Fermt verður í messunni.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson verður sérstakur gestur og mun predika og þjóna fyrir altari ásamt sr. Örnu. Það eru 20 ár liðin frá því að sr. Jón Dalbú söng fyrstu íslensku messuna hér í Oslo og þjónaði Íslendingum búsettum hérlendis.
Tónlistarhlaðborð þar sem fremst fer Ískórinn undir stjórn Gísla J. Grétarssonar sem leiðir sálmasöng. Hjörleifur Valsson fiðluleikari fær til liðs við sig djúpa tóna sellóleikarans Jan Øyvind Grung Sture og Margrét Grétarsdóttir söngkona munu gleðja hug og hjörtu kirkjugesta. Organisti er Ole Johannes.
Kaffihlaðborð á eftir í safnaðarheimilinu í umsjá Íslendingafélagsins.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Verið hjartanlega velkomin til kirkju.
