Sameiginleg guðsþjónusta íslenska safnaðarins í Noregi og Nordberg safnaðar verður sunnudaginn 5. október n.k kl.14. Prestar safnaðanna sr. Egil Stray Nordberg og sr. Arna Grétarsdóttir munu leiða guðsþjónustuna ásamt messuþjónum. Messan fer fram á íslensku og norsku og sungnir verða sálmar á báðum tungumálum.
Ískórinn mun syngja að venju undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og organisti er Ole Johannes.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með fræðslu, fjör og leiki fyrir börnin í umsjá Ásu Laufeyjar, Heiðrúnar og Hrefnu.
Íslendingafélagið sér um veglegt kirkjukaffi og spjall á eftir í safnaðarheimilinu.
Tekið verður sérstaklega á móti nýjum fermingarbörnum á Óslóarsvæðinu, þau boðin velkomin til þjónustu. Þau mæti kl.13.30.
Verið hjartanlega velkomin.

