Allra heilagra messa verður sunnudaginn 2. nóvember kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari og Ása Laufey Sæmundsdóttir guðfræðingur og fræðslufulltrúi aðstoðar við helgihald ásamt fermingarbörnum og messuþjónum. Messuþjónar eru Osvald Kratch og Elsa Þórðardóttir. Ískórinn syngur að venju undir stjórn Gísla J. Grétarssonar.
Organisti er Ole Johannes.
Altarisganga og minningarljós tendruð.
Sérstaklega verður þeirra minnst sem látist hafa á s.l ári og söfnuðurinn hefur beðið fyrir á árinu.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á meðan á messu stendur og kaffi á eftir í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló.
Verið hjartanlega velkomin til messu.
