Jólamessa í Drammen 13. desember

Næstkomandi laugardag ,13. desember, verður jólamessa í Åssiden kirkju í Drammen kl. 14. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari. Margrét Brynjarsdóttir syngur einsöng. Hjörleifur Valsson spilar á fiðluna. Ískórinnn leiðir sönginn undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Gróa Hreinsdóttir spilar á orgelið. Jólasunnudagaskóli er á sínum stað á meðan á messu stendur. Jólaball og kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir messu. Verið öll hjartanlega velkomin !  

Read More »

Upplestur á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í Ólafíustofu 10. desember

Miðvikudaginn 10. desember frá kl. 15:30-17:30 verður upplestur á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20 í Osló. Aðventa kom út á íslensku árið 1939 og er ein vinsælasta bók Gunnars sem gefin hefur verið út á 10 tungumálum um víða veröld. Mörgum finnst sagan jafn ómissandi um jólin og jólaguðspjallið sjálft og lesa hana […]

Read More »

Helgihald hjá Íslenska söfnuðinum í Noregi á aðventunni

Þrándheimur: 6. desember. Messa í Tempe kirkju kl. 13. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Sérstakur gestur verður Gunnar Þórðarsson sem spilar og syngur. Hjörleifur Valsson spilar á fiðluna. Kór Kjartans syngur. Messukaffi og jólaball. Stavanger: 7. desember. Messa í Sunde kirkju kl. 14. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari. Gróa Hreinsdóttir organisti spilar undir. Margrét Brynjarsdóttir syngur. Jólasunnudagaskóli og […]

Read More »

Unglingar hittast í Bergen fimmtudaginn 20. nóvember

Unglingahittingur verður í Bergen, fimmtudaginn 20. nóvember.  Rebekka Ingibjartsdóttir og Elfur Helgadóttir taka á móti unglingunum. Mæting kl. 18:30 í kjallaranum í Skjold kirkju (við bybanestopp: Skjold). Það verður jólastemmning á fundinum þar sem skreytt verða piparkökuhús. Allir íslenskir unglingar í Bergen og nágrenni velkomin !

Read More »