Föstudaginn 21. nóvember kl. 17 ætla unglingar á Vestfold-svæðinu að hittast í Olavs kapellu í Sandefjord. Þetta er fyrsti unglingafundurinn á þessu svæði og markmiðið er að unglingar á svæðinu kynnist og eigi skemmtilega stund saman.
Við hlökkum til að sjá ykkur !
Margrét Ólöf og Ingibjörg.
