Messa annan hvítasunnudag kl.14 í Nordberg kirkju

Á annan hvítasunnudag (16.maí) er messa í Nordberg kirkju í Oslo  kl.14. Fermt verður í messunni. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og Ole Johannes Kosberg er organisti.  Prestar safnaðarins sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir og sr. Arna Grétarsdóttir þjóna. Kirkjukaffi er í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló. Sunnudagaskólinn á sínum stað. […]

Read More »

Ískórinn færði Ólafíusjóði gjöf á aðalfundi safnaðarins

Kóramót var haldið nú í apríl þar sem íslensku kórarnir sem starfandi eru í Noregi komu saman til æfinga og tónleikahalds. Aðgangseyri tónleikanna rann til Ólafíusjóðs Íslenska safnaðarins í Noregi og afhenti Þorbjörg Guðmundsdóttir formaður Ískórsins styrkinn á aðalfundi safnaðarins sem haldinn var 24. apríl s.l. Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir formaður sjóðsstjórnar tók við styrknum […]

Read More »

Vorferð 60 ára og eldri 12. maí

Nú fer að líða að lokum vetrarstarfsins hjá 60 ára og eldri. Að því tilefni verður farið í skemmtilega vorferð. Áætlun ferðar: Farið frá Ólafíustofu stundvíslega kl 10:00, fimmtudaginn 12. maí, þaðan sem ekið verður upp í Íslendingahúsið í Norefjell. Þar borðum við léttan hádegisverð, spjöllum og syngjum saman og skoðum nærumhverfi. Á leiðinni tilbaka […]

Read More »

Íhugunarguðsþjónusta og aðalfundur sunnudaginn 24. apríl kl.14

Íhugunarguðsþjónusta eða Taize messa verður í Nordberg kirkju í Ósló sunnudaginn 24.apríl kl.14.  Sungnir verða einfaldir og rólegir sálmar. Ískórinn leiðir sálmasöng undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Ole Johannes Kosberg situr við orgelið. Sr. Arna Grétarsdóttir predikar og leiðir helgihald. Fermingarbörnin aðstoða við helgihaldið. Kirkjukaffi að venju og hefðbundin […]

Read More »

Hjálparstarfi kirkjunnar færðu styrkur úr Ólafíusjóði

Safnaðarstjórn ákvað á fundi sínum í mars að veita aukafjárveitingu að upphæð 30.000 nkr. inn í Ólafíusjóðinn til styrkatar Hjálparstarfi kirkjunnar.  Kristján Daðason sem situr í stjórn Ólafíusjóðs afhenti styrkinn fyrir hönd Ólafíusjóðs Íslenska safnaðarins í Noregi til Hjálparstarfs kirkjunnar. Bjarna Gíslasyni framkvæmdarstjóra Hjálparstarfs kirkjunnar tók á móti styrknum með þakklæti.  Það er von og […]

Read More »

Aðalfundur 24. apríl n.k í Nordberg kirkju

Aðalsafnaðarfundur verður haldinn þann 24. apríl n.k í Nordberg kirkju. Messa hefst kl.14 og er fundurinn í safnaðarheimilinu strax á eftir. Boðað hefur verið til fundarins í fréttabréfi safnaðarins og í messum. Dagskrá aðalsafnaðarfundar samkvæmt lögum safnaðarins: a. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað b. Kosning fundarstjóra og fundarritara c .Skýrsla formanns d. Stefna […]

Read More »