Íhugunarguðsþjónusta eða Taize messa verður í Nordberg kirkju í Ósló sunnudaginn 24.apríl kl.14. Sungnir verða einfaldir og rólegir sálmar. Ískórinn leiðir sálmasöng undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Ole Johannes Kosberg situr við orgelið. Sr. Arna Grétarsdóttir predikar og leiðir helgihald. Fermingarbörnin aðstoða við helgihaldið. Kirkjukaffi að venju og hefðbundin aðalfundarstörf hefjast eftir messu. (sjá auglýsingu um aðalfundarstörf) Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í umsjá sr. Ásu Laufeyjar Sæmundsdóttur. Verið hjartanlega velkomin til kirkju.
