Nýr sóknarprestur safnaðarins

Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir hefur verið valin sem nýr sóknarprestur safnaðarins. Hún mun taka við af sr. Örnu Grétarsdóttur sem lætur af störfum 1.júlí nk. Sr. Ragnheiður Karítas kemur til starfa 1.október og mun Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prestur og fræðslufulltrúi safnaðarins standa þjónustuvaktina í sumar. Sr. Ragnheiður Karítas hefur áralanga prestsreynslu bæði á Íslandi og […]

Read More »

Messa Sælen kirkju í Bergen

Þjóðhátíðadagurinn verður haldinn hátíðlegur á kvenréttindadaginn sunnudaginn 19. júní í Sælen kirkju, Vardavegen 9, 5141 Bergen. Hátíðarhöldin byrja með messu kl.14. Sr. Arndís Ósk Pétursdóttir sóknarprestur í Steinskjer þjónar fyrir altari og Sönghópurinn í Bergen leiðir sálmasöng að venju. Eftir messuna tekur við dagskrá Íslendingafélagsins með skrúðgöngu, leikjum og andlitsmálning fyrir börnin, happadrætti og söngatriði […]

Read More »

Ragnheiður Gröndal syngur í Nordberg kirkju 18. júní kl.14 og kveðjumessu sr. Örnu

Kveðjumessa sr. Örnu Grétarsdóttur verður í Nordberg kirkju laugardaginn 18.júní kl.14 en sr. Arna hefur starfað sem prestur safnaðarins sl. níu ár. Hún flytur nú til Íslands og tekur við Reynivallaprestakalli í Kjós og á Kjalarnesi. Vegna þeirra tímamóta koma í heimsókn hin ástsæla söngkona Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson gítarleikari og flytja vel valin […]

Read More »

Vorhátíð sunnudagaskólans í Stavanger og messa, 29. maí kl. 14

Síðasti sunnudagaskólinn í Stavanger verður næstkomandi sunnudag, 29. maí kl. 14, í Hinna kirkju, (Gamleveien, 4020 Stavanger). Á sama tíma verður messa í kirkjunni, prestur er sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Fermt verður í messunni. Sönghópurinn í Bergen leiðir sönginn undir stjórn Tönju Jóhansen.  Íslendingafélagið í Stavanger sér um kaffiveitingar Á eftir verður síðan vorhátíð sunnudagaskólans […]

Read More »