Þjóðhátíðadagurinn verður haldinn hátíðlegur á kvenréttindadaginn sunnudaginn 19. júní í Sælen kirkju, Vardavegen 9, 5141 Bergen.
Hátíðarhöldin byrja með messu kl.14. Sr. Arndís Ósk Pétursdóttir sóknarprestur í Steinskjer þjónar fyrir altari og Sönghópurinn í Bergen leiðir sálmasöng að venju.
Eftir messuna tekur við dagskrá Íslendingafélagsins með skrúðgöngu, leikjum og andlitsmálning fyrir börnin, happadrætti og söngatriði frá Íslenska sönghópnum í Bergen.
Íslenskar SS pylsur verða til sölu og einnig verður kaffihlaðborð,en gestir eru beðnir um að leggja til veitingar á kaffiborðið.
