Kveðjumessa sr. Örnu Grétarsdóttur verður í Nordberg kirkju laugardaginn 18.júní kl.14 en sr. Arna hefur starfað sem prestur safnaðarins sl. níu ár. Hún flytur nú til Íslands og tekur við Reynivallaprestakalli í Kjós og á Kjalarnesi. Vegna þeirra tímamóta koma í heimsókn hin ástsæla söngkona Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson gítarleikari og flytja vel valin lög. Hjörleifur Valsson leikur einleik á fiðlu og Ískórinn syngur ættjarðarsálma undir stjórn Gísla J. Grétarssonar.
Lýðveldishátíðarhöldin verða á sama tíma í og við kirkjuna og mun Íslendingafélagið í Ósló hafa veg og vanda af góðri dagskrá með skrúðgöngu, lúðrasveit, andlitsmálningu og hoppukastala. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar.
Ávarp formanns Íslendingafélagsins, Ómars Diðrikssonar, verður á sínum stað og fjallkona flytur ljóð.
Kirkjukaffi í safnaðarheimilinu eftir skrúðgönguna sem hefst við kirkjudyrnar strax eftir lokasálm sem er að sjálfsögðu þjóðsöngurinn.
Það verður hægt að kaupa íslensk fánaflögg fyrir messu.
Verið hjartanlega velkomin.
