Hátíðarmessa annan jóladag 26.desember í Nordberg kirkju í Ósló kl.13 og jólaball.

Hátíðarmessa verður að venju annan jóladag kl.13 í Nordberg kirkju í Ósló. Organisti er Nikita Siritenko. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og Ketil Grötting syngur einsöng ásamt því að stjórna söng Ískórsins. Jólaball verður á eftir í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló. Verið hjartanlega velkomin til kirkju á heilagri jólahátíð. Athugið breyttan messutíma, messan hefst kl.13.

Read More »

Jólasamvera eldri borgara í Ósló og lestur bókarinnar Aðventa

Sunnudaginn 11.desember kl.16 verður jólasamvera eldri borgara í skötuhúsinu Lambertseter. Boðið verður upp á hangikjöt og uppstúf. Lesið verður úr bókinni Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson og Sunna Einarsdóttir leikur á fiðlu. Einar Traustason eldriborgarafulltrúi safnaðarins hefur umsjón með stundinni. Verið hjartanlega velkomin.

Read More »

Jólastundir í Skarbøvik kirkju í Ålesund og Geilo kirkju.

 Ålesund

Jólastund verður laugardaginn 17.desember kl.14 í Skarbøvik kirkju í umsjá Mörtu Ingólfsdóttur, Ernu Harðardóttur og sr. Þráins Haraldssonar. Notaleg jólastund við kertaljós og sögu. Jólaball á eftir. Verið hjartanlega velkomin.

Geilo

Jólastund verður annan jóladag 26.desember kl.15 í Geilo kirkju (kulturkirke) í umsjá Ásdísar Evlalíu Guðmundsdóttur og Sakaríasar Ingólfssonar guðfræðings. Notaleg stund við kertaljós og sögu. Jólaball á eftir. Verið hjartanlega velkomin.

Read More »

Jólamessur og jólaball í Stavanger og Þrándheimi sunnudaginn 11.desember.

Stavanger

Jólamessa í Varden kirkju í Stavanger á sunnudaginn 11.desember kl.11. Katrín Ósk Óskarsdóttir söngkona og Hjörleifur Valsson fiðluleikari gleðja okkur með sínum fögru tónum. Fermingarbörn aðstoða við messuhaldið. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari. Stundin er sniðin bæði fyrir börn og fullorðna. Jólaball og kökuhlaðborð í umsjá Íslendingafélagsins á eftir messunni. Verið hjartanlega velkomin.

Þrándheimur

Jólamessa í Bakke kirkju í Þrándheimi á sunnudaginn 11.desember kl.14. Íslenski kórinn í Þrándheimi syngur. Sr. Þorvaldur Víðisson þjónar fyrir altari. Kaffi og jólagotterí á eftir. Verið hjartanlega velkomin.

Read More »

Umsóknir í Ólafíusjóð Íslenska safnaðarins í Noregi

Hægt er að sækja um styrk í Ólafíusjóðinn með því að senda umsókn á skrifstofu safnaðarins, merkt: Ólafíusjóður b/t sr. Arna Grétarsdóttir. Allar umsóknir eru trúnaðarmál og einungis nafn styrkþega kemur fram í bókhaldsgögnum. Úthlutunarreglur eða skipulagsskrá má lesa undir upplýsingar/Ólafíusjóður. Umsóknareyðublað má finna hér: https://www.old.kirkjan.no/?q=content/ólaf

Read More »