Tölvupóstur prests: prestur@kirkjan.no óvirkur!

Verið er að leita orsaka fyrir því að tölvupóstur prestsins hefur ekki virkað sem skyldi.

Þau sem hafa sent erindi til prests safnaðarins og ekki fengið svar eru vinsamlega beðin um að senda póst a arna.gretarsdottir@kirkjan.is  eða sms 95753390.

Vonandi verður þetta komið i lag sem fyrst.

 

Read More »

Hjóna- og paranámskeið

Hjóna- og paranámskeið verður haldið laugardaginn 21. janúar n.k kl.16 – 19 á skrifstofu safnaðarins. Byggt verður á kenningum Gary Chapmann um fimm tungumál kærleikans.

Námskeiðið kostar kr. 200.- pr. par. Skráning á starfsmadur@kirkjan.no

Leiðbeinendur eru sr. Arna Grétarsdóttir og Eygló Sigmundsdóttir sálfræðingur.

Verið hjartanlega velkomin. 

Guðsþjónusta verður á sunnudeginum 22. júní í Nordberg kirkju kl.14. Þema: Ástin.

Read More »

Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár og takk fyrir góð kynni á árinu sem er að líða

Ég bið góðan Guð um að blessa ykkur nýja árið með þeim möguleikum sem því fylgir. Guð gefi að fortíð, nútíð og framtíð sé umvafin kærleika Krists.  Árið 2012 býð ég velkomið með því að láta fylgja skemmtileg og djúpavitur orð sem Hr. Karl Sigurbjörnsson biskupinn yfir Íslandi "póstaði" á facebook á dögunum.  Þetta eru síðustu jólin og áramótin sem hann og frú Kristín þjóna sem biskupshjón. Guð blessi þau fyrir trygga og trúa þjónustu. 

Uppskrift að nýju ári: Takið 12 góða, fullþroskaða mánuði. Hreinsið burt níð og nag og fjarlægið hugsanlega flekki smámunasemi. Skiptið mánuðunum upp í ca 30 jafnstóra bita. Forðist að baka alla bitana í einu, takið einn dag í senn. Bætið við hvern dag í jöfnum hlutum: hugrekki, kærleika, vinnu, umburðarlyndi, sjálfsvirðingu, þolgæði, von og hvíld. Bætið síðan við gleði, smá skvettu af fíflagangi, leikgleði og góðum skammti af kímni. Velkomið Drottins ár!
(K. Sigurbjörnsson á facebook des. 2011)

Read More »

Óska Íslendingum í Noregi gleðilegra jóla

Guð gefi þér og þínum gleði og frið á heilagri jólahátíð.  Megi boðskapur jólanna ná inn að hjartarótum og fylla líf þitt af þakklæti, kærleika og friði. Friðar- og gleðiboðskapurinn fjallar um að Drottinn sjálfur, sonur Guðs frelsari heimsins sem fæddist á jólum vill mæta þér, leiða og styrkja í þeim verkefnum sem lífið hefur fært þér.

Minni ykkur á hátíðarguðsþjónustu á aðfangadag í Dómkirkjunni í Reykjavík sem auðvelt er að hlusta á í gegnum netið.

Annan jóladag verður svo messa kl.13 í Nordberg kirkju í Ósló. Sjá auglýsingu hér á síðunni.

Með kærri jólakveðju og blessunaróskum,

Arna Grétarsdóttir, prestur.

 

Read More »

Vegleg gjöf frá Íslendingum í Noregi

 Þann 19. desember afhenti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Noregi, Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð 100.000 norskar krónur, eða rúmlega tvær milljónir íslenskra króna, frá íslenska söfnuðinum í Noregi. Sigríður Dúna afhenti Jónasi Þ. Þórissyni framkvæmdastjóra Hjálparstarfsins styrkinn í Dómkirkjunni og var sóknarpresturinn Hjálmar Jónsson einnig viðstaddur. Er styrknum ætlað að renna til hjálparstarfs kirkjunnar á Íslandi fyrir jólin og vilja Íslendingar í Noregi með því leggja löndum sínum heima lið. Með styrknum fylgja hlýjar jólakveðjur. Styrkurinn er veittur í nafni Ólafíusjóðs, sem starfar á vegum íslenska safnaðarins og er Sigríður Dúna formaður sjóðsstjórnar.

Ólafíusjóður er nefndur í höfuðið á trúkonunni Ólafíu Jóhannsdóttur, sem starfaði meðal þeirra sem minnst máttu sín í Osló upp úr aldamótunum 1900.  Hlutverk sjóðsins er að aðstoða bágstadda Íslendinga bæði í Noregi og á Íslandi. Ólafía var brautryðjandi í hjálparstarfi á sinni tíð og hafa Norðmenn heiðrað minningu hennar með ýmsum hætti. Brjóstmynd af Ólafíu stendur nærri Vaterlandbrúnni í Osló og í nágrenninu er gata nefnd eftir henni; Olafiagangen. Ólafía sinnti starfi sínu einkum meðal þeirra kvenna sem minnst máttu sín í samfélaginu og urðu að þola kynferðisofbeldi af ýmsu tagi. Þegar Norðmenn settu á stofn miðstöð fyrir leiðbeiningar um getnaðarvarnir og meðhöndlun kynsjúkdóma nefndu þeir hana því Olafiaklinikken í höfuðið á Ólafíu.

Krossmen Ólafíu barst eftir krókaleiðum til Íslands og er það varðveitt í Dómkirkjunni í Reykjavík. Því þótti við hæfi að afhenda styrkinn í kirkjunni, sem einnig var sóknarkirkja Ólafíu á Íslandi. Í Noregi hefur mynd krossmensins verið saumuð út í hökul og stólu prests íslenska safnaðarins og í hverri messu fara fram samskot í sjóðinn sem ber nafn hennar.

Read More »