Í Åssiden kirkju í Drammen verður messa kl.14 laugardaginn 3.desember.
Í Åsane kirkju í Bergen verður messa kl.15 sunnudaginn 4.desember.
Á báða staðina kemur Ískórinn og Hjörleifur Valsson einn besti fiðluleikari Íslendinga mætir ásamt söngkonunni Björgu Þórhallsdóttur og tónlistarmanninum og organistanum Hilmari Erni Agnarssyni.
Í Bergen mun Rebekka Ingibjartsdóttir leika á fiðlu ásamt undirleikara, Orgelleik í Bergen annast Ingibjartur Jónsson og sönghópur Bergen syngur með.
Á meðan guðþjónustan fer fram mun Helga Sigríður Þórsdóttir í Bergen og Svala Snorradóttir í Drammen leiða börnin inn í sunnudagaskólann í hliðarsal kirkjunnar.
Að athöfn lokinni verður jólaball og kaffisamsæti á báðum stöðunum..Dansað verður í kringum jólatréð og er aldrei að vita nema jólasveinar kíkji við með eitthvað gott í poka!!
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið á skrifstofu safnaðarins laugardaginn 26.nóvember kl.12-15. Skráning með því að senda póst á: starfsmadur@kirkjan.no. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Eygló Sigmundsdóttir sálfræðingur og sr.Arna Grétarsdóttir prestur íslendinga í Noregi.
Á námskeiðinu verða kennd sjálfstyrkjandi samskipti og sjálfstyrkjandi hugsun.
Farið verður í streitulosandi upplifun í bæn, slökun og íhugun ásamt því að kenndar verða "Mindfullness" æfingar.
Fyrirhugað er sjálfstyrkingarnámskeið fyrir karla ef áhugi reynist nægur.
Read More »Fyrsta sunnudag í aðventu 27. nóvember kl.14 verður hin árlega aðventuhátíð safnaðarins.
Þríeykið Hjörleifur Valsson fiðluleikari, Björg Þórhallsdóttir sópran og Hilmar Örn Agnarsson organist flytja hátíðlega jóladagskrá með léttum klassískum keim. Sígild og fjölbreytt dagskrá ásamt nýjungum.
Ískórinn syngur að venju undurfagurt undir styrkri stjórn Ketil Grötting.
Formaður safnaðarstjórnar Gunnar Hólm setur hátíðina. Hátíðarræðu flytur Guðrún Ebba Ólafsdóttir og jólasöguna les Íris Arnarsdóttir 10 ára.
Verið hjartanlega velkomin til hátíðarstundar í upphafi aðventu.
Read More »
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Örkinni hans Nóa – Rica hotel við Dyreparken i Kristiansand kl.11 næsta sunnudag 13. nóvember. Fólk á öllum aldri að sjáflsögðu velkomin. Ís og kaffi á eftir og upplagt að fara í dýragarðinn á eftir. Hver fjölskylda fær svo DVD sunnudagaskóladiskinn " Daginn í dag" að gjöf frá söfnuðinum. Hlakka til að sjá ykkur.
Read More »Allra heilagra messa kl.14 á sunnudaginn í Nordbergkirkju. Við tendrum ljós í minningu látinna. Anna Jónsdóttir sópran syngur einsöng og Hjörleifur Valsson strýkur strengi fiðlunnar. ískórinn syngur undir stjórn Ketil Grötting og Peggy situr við orgelið sem fyrr. Fermingarbörnin aðstoða við helgihaldið. Kirkjukaffi og með því á eftir messunni í umsjá Íslendingafélagsins. Verið hjartanlega velkomin.
Read More »