Haustdagskrá safnaðarins í Bergen
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur í Bergen
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið í Bergen laugardaginn 15. október á Radison Blu hotel, Nedre Ole bulls plass 4 kl.12-15.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Eygló Sigmundsdóttir sálfræðingur og sr.Arna Grétarsdóttir prestur íslendinga í Noregi.
Á námskeiðinu verða kennd sjálfstyrkjandi samskipti og sjálfstyrkjandi hugsun.
Farið verður í streitulosandi upplifun í bæn, slökun og íhugun ásamt því að kenndar verða "Mindfullness" æfingar.
Fermingarfræðsla í Bergen
Fermingarfræðslan verður á Radison Blu hotel, Nedre Ole bulls plass 4 , laugardaginn 15. október kl.09.45 – 11:45.
Fjölskylduguðþjónusta í Bergen 16. október í Skjold kirkju
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Bergen sunnudaginn 16. október kl.14. i Skjold kirkju við Fanavegen. Fermingarbörnin aðstoða við helgihald.
Það verður líf og fjör í kirkjunni. Helga og Arna sjá um stundina og rebbi og mýsla kíkja við. Allir krakkar fá sunnudagaskólann á DVD "Daginn í dag" (einn diskur á heimili). Boðið verður upp á hressingu á eftir. Verið hjartanlega velkomin.
Söfnuðurinn er á Facebook: Íslenski söfnuðurinn í Noregi og Íslenski sunnudagaskólinn í Bergen.
Aðrar samverur verða eftirfarandi: sunnudagaskóli 13. nóvember í Skjold kirkju og aðventu messa 4. desember í Åsane kirkju.
