Fermingarmessa í Seltjarnarneskirkju 3. júlí kl.11

Messa verður í Seltjarnarneskirkju 3. júlí kl.11. Í messu verða ungmenni fermd sem búsett eru í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Kvartett úr kammerkór kirkjunnar leiðir messutón og sálmasöng. Margrét Grétarsdóttir syngur einsöng. Verið hjartanlega velkomin. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar.

Read More »

Fermingarfræðsla Íslenska safnaðarins í Noregi 2012 – 2013.

Skráningarblað fyrir íslensk börn búsett í Noregi. Athugið að stærstur hluti fermingarfræðslunnar fer fram á tveimur helgarnámskeiðum í Svíþjóð helgina 28.-30. Sept. 2012 og helgina 10.-12. Maí 2013. Þau námskeið eru sameiginleg með íslenskum börnum búsettum í Svíþjóð og Danmörku. Auk þessa hittir prestur fermingarbörnin í messuferðum sínum um landið þar sem þau aðstoða við messuhald o.fl. 

Read More »

Lýðveldishátíðin í Nordberg kirkju í Ósló

Lýðveldishátíðinni verður fagnað þann 19.júní n.k í og við Nordberg kirkju kl.14. Súsanna Andreudóttir formaður Íslendingafélagsins setur hátíðina. Ólafur Hallgrímsson flytur hátíðarávarp. Fjallkona flytur ljóð og sr. Arna Grétarsdóttir og Hjörleifur Valsson flytja hugvekju í tónum og tali. Ískórinn syngur ættjarðarlögin og Lúðrasveit Hönefoss blæs af krafti 17.júní stemmningu í mannskapinn. Gengið verður um hverfið í skrúðgöngu ásamt lúðrasveitinni. Íslendingafélagið í Ósló sér um hátíðarhöldin í samstarfi við söfnuðinn. Ýmislegt verður til skemmtunar börnum og fullorðnum. Dóri í Tempó spilar á gítar og syngur. Galdrakerling mætir á svæðið og ýmislegt annað skemmtilegt. Pylsur og íslenskt sælgæti. Messukaffi að venju í safnaðarheimilinu gestum að kostnaðarlausu. Verið hjartanlega velkomin. Sjá nánar: www.islendingafelagid.no

 

Read More »

FJölskylduguðsþjónusta í Vesterøy kirkju Sandefjord

Hvítasunnudagurinn á Íslenska söfnuðinum verður í ár haldinn hátíðlegur í Sandefjord. Það verður fjölskylduguðsþjónusta kl.14 í Vesterøy kirkju. Íslendingafélagið Jötunn hefur umsjón með kaffinu á eftir. Sálmaval er á léttum nótum og andi Guðs svífur yfir vötnum enda Hvítasunnan hátíð heilags anda. Verið hjartanlega velkomin.

Read More »

Sjálfstyrkingarnámskeið og messa í Tromsø

Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið á Sommerøya rétt utan við Tromsø laugardaginn 4. júní frá kl.14.30-17.30.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Eygló Sigmundsdóttir sálfræðingur og sr. Arna Grétarsdóttir. Á námskeiðinu verður fjallað um sjálfstraust og samskipti; hvernig mótast sjálfsmynd okkar og hvernig viðhelst hún? Einnig verður fjallað um hvernig við getum tamið okkur meiri ákveðni í samskiptum og gerðar verða sjálfstyrkjandi æfingar. Mindfulnessæfingar, slökun, íhugun og bæn. Spennandi námskeið sem gefur þátttakendum nýja sín og aukið sjálfstraust. Kostnaður við námskeiðshald er greitt af söfnuðinum. Sendið skráningu til Brynju Gunnarsdóttur: brynjagunnars@gmail.com

Messa verður í Elverhøy kirkju sunnudaginn 5.júní (sjómannadaginn) kl.14. Kammerkór Tromsø syngur og leiðir sálmasöng. Organisti er Paul Gunnar. Kaffi og kökur á eftir í umsjá Íslendingafélgasins. Verið hjartanlega velkomin.

Read More »

Guðsþjónusta í Ålesund kirkju sunnudaginn 15.maí kl.14.

Verið hjartanleg velkomin í guðsþjónustu í Ålesund kirkju n.k sunnudag kl.14. Notaleg og létt helgistund á íslensku sniðin að börnum og fullorðnum. Íslenskur sunnudagaskóli verður á svæðinu reglulega næsta vetur og væri gaman að sjá hversu margir hefðu áhuga á barnastarfi á þessu svæði. Hlakka til að sjá sem flesta. Verið hjartanleg velkomin. Arna Gr.

Read More »