Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið á Sommerøya rétt utan við Tromsø laugardaginn 4. júní frá kl.14.30-17.30.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Eygló Sigmundsdóttir sálfræðingur og sr. Arna Grétarsdóttir. Á námskeiðinu verður fjallað um sjálfstraust og samskipti; hvernig mótast sjálfsmynd okkar og hvernig viðhelst hún? Einnig verður fjallað um hvernig við getum tamið okkur meiri ákveðni í samskiptum og gerðar verða sjálfstyrkjandi æfingar. Mindfulnessæfingar, slökun, íhugun og bæn. Spennandi námskeið sem gefur þátttakendum nýja sín og aukið sjálfstraust. Kostnaður við námskeiðshald er greitt af söfnuðinum. Sendið skráningu til Brynju Gunnarsdóttur: brynjagunnars@gmail.com
Messa verður í Elverhøy kirkju sunnudaginn 5.júní (sjómannadaginn) kl.14. Kammerkór Tromsø syngur og leiðir sálmasöng. Organisti er Paul Gunnar. Kaffi og kökur á eftir í umsjá Íslendingafélgasins. Verið hjartanlega velkomin.
