Hátíðarmessa annan jóladag 26.desember í Nordberg kirkju í Ósló kl.13 og jólaball.

Hátíðarmessa verður að venju annan jóladag kl.13 í Nordberg kirkju í Ósló. Organisti er Nikita Siritenko. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og Ketil Grötting syngur einsöng ásamt því að stjórna söng Ískórsins. Jólaball verður á eftir í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló. Verið hjartanlega velkomin til kirkju á heilagri jólahátíð. Athugið breyttan messutíma, messan hefst kl.13.