Aðalfundarboð

Aðalsafnaðarfundur verður haldinn þann 26. apríl n.k í Nordberg kirkju. Messa hefst kl.14 og er fundurinn í safnaðarheimilinu strax á eftir. Dagskrá aðalsafnaðarfundar samkvæmt lögum safnaðarins: a. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað b. Kosning fundarstjóra og fundarritara c .Skýrsla formanns d. Stefna stjórnar e. Skýrsla prests f. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram g. […]

Read More »

Helgihald yfir páskana

Skírdagskvöld í Ólafíustofu kl. 17-19. Guðsþjónusta verður fimmtudaginn 2.apríl eða á skírdagskvöld kl.17 i Ólafíustofu (Pilestredet Park 20). Helgihaldið hefst á borðhaldi þar sem súpa og brauð verða í boði. Lestrar, fallegir kvöldsálmar, hugleiðing og altarisganga. Sérstakt altarisbrauð verður bakað fyrir þessa stund.  Sr. Arna Grétarsdóttir predikar, Sr. Ása Lafey Sæmundsdóttir og sr. Jóhanna Sigmarsdóttir […]

Read More »

Tónleikar í Sælen kirkju í Bergen, 25. mars kl. 20:00

Sálmakvöld í Sælen kirkju í Bergen næstkomandi miðvikudagskvöld, 25. mars kl. 20:00, þar sem meðal annars passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða fluttir. Ævi Hallgríms var á margan hátt óvenjuleg og sálmar hans eiga sér djúpar rætur í sögu og menningu Íslendinga. Sönghópurinn í Bergen syngur og organistinn Bjørn Lien spilar passíur J.S Bachs. Enginn aðgangseyrir. Nánari upplýsingar má […]

Read More »

Guðsþjónusta í Stavanger sunnudaginn 22. mars kl. 14

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 22. mars kl. 14 í Johannes kirkju í Stavanger. Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir predikar og þjónar fyrir altari.  Katrín Ósk Óskarsdóttir, syngur og leiðir almennan söng. Anna María Proppé og Kolbrún Edda sjá um sunnudagaskólann sem verður á sama tíma. Páskaeggjaleit sunnudagaskólans og kirkjukaffi eftir messuna. Verið hjartanlega velkomin !

Read More »

Guðsþjónusta í Bergen sunnudaginn 15. mars kl. 15

Næsta sunnudag 15. mars kl. 15:00 er barna- og fjölskylduguðþjónusta í Skjoldkirkju, Skjoldlia 55. Nývígður fræðslufulltrúi safnaðarins sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir mun sjá um Guðþjónustuna ásamt sunnudagaskólastarfsmönnum. Sönghópurinn í Bergen syngur, Rebbi og Mýsla mæta á staðinn og börnin fara í páskaeggjaleit og búa til pappaegg. Kirkjugestir eru beðnir um að leggja til veitingar á […]

Read More »

60 ára og eldri hittast í fiskisúpu og spjall, fimmtudaginn 12. mars

Næstkomandi fimmtudag, 12. mars, hittast 60 ára og eldri kl. 12.15 á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20, í Osló. Við hefjum stundina á stuttri kyrrðar- og bænastund sem sr. Ása Laufey leiðir, að henni lokinni borðum við hádegismat saman. Að þessu sinni verður boðið upp á fiskisúpu sem Óli kokkur ætlar að elda fyrir okkur, síðan […]

Read More »