Næstkomandi fimmtudag, 12. mars, hittast 60 ára og eldri kl. 12.15 á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20, í Osló.
Við hefjum stundina á stuttri kyrrðar- og bænastund sem sr. Ása Laufey leiðir, að henni lokinni borðum við hádegismat saman. Að þessu sinni verður boðið upp á fiskisúpu sem Óli kokkur ætlar að elda fyrir okkur, síðan fáum við okkur kaffi og konfekt á meðan við spjöllum saman um málefni líðandi stundar.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Ása Laufey og Osvald.
