Guðsþjónusta verður sunnudaginn 22. mars kl. 14 í Johannes kirkju í Stavanger. Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Katrín Ósk Óskarsdóttir, syngur og leiðir almennan söng. Anna María Proppé og Kolbrún Edda sjá um sunnudagaskólann sem verður á sama tíma. Páskaeggjaleit sunnudagaskólans og kirkjukaffi eftir messuna.
Verið hjartanlega velkomin !

