60 ára og eldri hittast fimmtudaginn 12. nóvember

Fimmtudaginn 12. nóvember næstkomandi hittast 60 ára og eldri kl. 12.15 á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20, í Osló. Við hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund, sem sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir, síðan borðum við hádegismat saman. Að þessu sinni verður boðið upp á íslenska kjötsúpu og við fáum okkur kaffi og meðlæti […]

Read More »

Aðventuhátíð í Osló fyrsta sunnudag í aðventu kl.14

Aðventuhátíð fyrir Oslóarsvæðið verður að þessu sinni haldin í Høvik kirkju, Sandviksveien 11, 1363 Sandvika, fyrsta sunnudag í aðventu (29.nóvember) kl.14. Listanefnd safnaðarins í samstarfi við Ískórinn hefur sett saman metnaðarfulla dagskrá með stórsöngvurum og strengjasveit.  Hin ástsæla leikkona Edda Björgvinsdóttir flytur hátíðarræðu. Klassískar tónlistarperlur fylla dagskrána í flutningi einsöngvaranna Dóru Steinunnar Ármannsdóttur, Margrétar Brynjarsdóttur Daníels Daníelssonar […]

Read More »

Allra heilagra messa – Minning látinna í Nordberg kirkju kl.14

Messa verður sunnudaginn 1. nóvember kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló.  Sérstaklega verður látinna vina og ástvina minnst með því að tendra minningarljós. Ískórinn syngur að venju undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Organisti er Ole Johannes Kosberg og Hjörleifur Valsson strýkur strengi fiðlunnar. Altarisganga. Fermingarbörnin aðstoða við undirbúning og messuhald. Sunnudagaskólinn er á sínum stað á meðan […]

Read More »

Minningardagur um Ólafíu Jóhannsdóttur

In Memoriam Ólafía Jóhannsdóttir í Ólafíustofu fimmtudaginn 22. október kl.17-18.30.  Ár hvert býður Listanefnd safnaðarins upp á dagskrá á fæðingardegi Ólafíu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo.  Dagskráin hefst kl.17 með sýningu heimildarmyndar um Ólafíu og Íslenska söfnuðinn í Noregi. Um kl.17.30 tekur við stutt minningarstund og ljóðalestur. Ottó Guðjónsson tölvufræðingur, Rebekka Ingibjartsdóttir fiðluleikari […]

Read More »

60 ára og eldri hittast fimmtudaginn 8. október í Ólafíustofu

Næstkomandi fimmtudag, 8. október, hittast 60 ára og eldri aftur eftir sumarfrí, á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20 Osló. Við hefjum stundina á stuttri kyrrðar- og bænastund kl. 12:15 sem sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir, að henni lokinni borðum við saman hádegismat. Það verður boðið uppá plokkfisk og rúgbrauð og síðan fáum við […]

Read More »

Guðsþjónusta í Nordberg kirkju 4.október kl.14

Guðsþjónusta verður í Nordberg kirkju sunnudaginn 4.október kl.14. Nýr sendiherra Íslands í Noregi Hermann Ingólfsson verður sérstaklega boðinn velkominn ásamt fjölskyldu sinni og mun ávarpa kirkjugesti. Arnar Páll Michelsen formaður safnaðarstjórnar og Einar Helgason gjaldkeri lesa ritningarlestra. Ískórinn syngur og leiðir sálmasöng undir stjórn Gísla Grétarssonar. Hjálmar Sigurbjörnsson leikur á trompet. Organisti er Ole Johannes […]

Read More »