Fimmtudaginn 12. nóvember næstkomandi hittast 60 ára og eldri kl. 12.15 á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20, í Osló. Við hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund, sem sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir, síðan borðum við hádegismat saman. Að þessu sinni verður boðið upp á íslenska kjötsúpu og við fáum okkur kaffi og meðlæti á eftir.
Við hlökkum til að sjá ykkur !
