Aðventuhátíð fyrir Oslóarsvæðið verður að þessu sinni haldin í Høvik kirkju, Sandviksveien 11, 1363 Sandvika, fyrsta sunnudag í aðventu (29.nóvember) kl.14. Listanefnd safnaðarins í samstarfi við Ískórinn hefur sett saman metnaðarfulla dagskrá með stórsöngvurum og strengjasveit. Hin ástsæla leikkona Edda Björgvinsdóttir flytur hátíðarræðu. Klassískar tónlistarperlur fylla dagskrána í flutningi einsöngvaranna Dóru Steinunnar Ármannsdóttur, Margrétar Brynjarsdóttur Daníels Daníelssonar og Eyjólfs Eyjólfssonar ásamt Ískórnum. Þröstur Eiríksson kantor mun leika á orgelið. Konsertmeistari er Hjörleifur Valsson.
Formaður safnaðarins Arnar Páll Michelsen setur hátíðina að venju með ávarpi. Bæna- og blessunarorð með friðaróskum verða á sínum stað.
Fermingarbörnin tendra fyrsta kertið á aðventukransinum og sunnudagaskólinn og krakkahornið verður á sínum stað fyrir yngstu börnin.
Að venju sér Íslendingafélagið um kirkjukaffi á eftir í safnaðarheimilinu.
Takið fyrsta sunnudag í aðventu frá, sunnudaginn 29.nóvember kl.14.
Verið hjartanlega velkomin.
Listanefnd Íslenska safnaðarins í Noregi
Hér er Høvik kirkja: https://www.google.no/maps/place/Høvik+menighet/@59.8990864,10.5770253,15z/data=!4m2!3m1!1s0x0:0x6a61b83bede71a9e
