In Memoriam Ólafía Jóhannsdóttir í Ólafíustofu fimmtudaginn 22. október kl.17-18.30. Ár hvert býður Listanefnd safnaðarins upp á dagskrá á fæðingardegi Ólafíu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Dagskráin hefst kl.17 með sýningu heimildarmyndar um Ólafíu og Íslenska söfnuðinn í Noregi. Um kl.17.30 tekur við stutt minningarstund og ljóðalestur. Ottó Guðjónsson tölvufræðingur, Rebekka Ingibjartsdóttir fiðluleikari og nemi og Ívar Sverrisson leikari munu lesa uppáhalds ljóðin sín. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Dagskrá lýkur kl.18.30.
„Kirkjuhvelfing“ verk Málfríðar Aðalsteinsdóttur listakonu verður til sýnis og mun hún segja stuttlega frá verkinu.
Kaffi, konfekt og skúffukaka er ókeypis fyrir gesti og gangandi á meðan á dagskrá stendur en safnað verður í í Ólafíusjóðinn sem er styrkarstjóður safnaðarins.
Verið hjartanlega velkomin.

