Jólamessa verður haldin næstkomandi sunnudag, 17. desember í Bakke kirkju í Þrándheimi kl. 14.
Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir leiðir stundina . Kór Kjartans syngur undir stjórn Hilmars Þórðarsonar
Organisti er Björn Leifsson. Haft verður ofan af fyrir yngstu kirkjugestunum á meðan á messunni stendur.
Jólamessukaffi og jólaball eftir messuna í samkomuhúsi Bakke kirkju. Aasmund Vinjes gate 4.
Það verður glaðningur í boði fyrir börnin og vonandi fáum við einhverja skemmtilega í heimsókn.
Verið hjartanlega velkomin !
Jólamessa í Hellemyr kirkju í Kristiansand (Bydalsveien 19, 4628 Kristiansand S) 3.sunnudag í aðventu 17. desember kl.14.
Sr. Lilja Kristin Þorsteinsdóttir leiðir stundina. Margrét Ólöf Magnúsdóttur hefur ofan af fyrir börnunum.
Hildigunn Richards spilar á orgelið og Kristín Magdalena Ágústsdóttir syngur einsöng.
Jólatrésskemmtun verður á sínum stað eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu þar sem dansað verður í kring um jólatréð,
Glaðningur handa yngstu kynslóðinni. Jólakaffiveitingar í umsjón Íslendingafélagsins á svæðinu.
Verið hjartanlega velkomin.

