Hátíðarmessa verður annan jóladag (26.desember) kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló. Prestur er Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir.
Ískórinn leiðir sálmasöng og hátíðarmessutón undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Undirleikari er Gróa Hreinsdóttir. Haft verður ofan af fyrir börnunum á meðan á messu stendur.
Kirkjukaffi og jólaball eftir messu i boði safnaðarins. Gróa og Ómar Diðriksson halda uppi fjörinu, það verður dansað í kringum jólatréð, sungið og leikið. Glaðningur fyrir yngstu kynslóðina.
Verið hjartanlega velkomin til hátíðarstundar.
