Laugardaginn 9.des. kl.14 verður messa og jólaball í Tangen kirkju , kirkebakken 1 í Drammen.
Sr. Lilja Kristin Þorsteinsdóttir leiðir stundina. Ískórinn syngur og leiðir sálma- og messusöng undir stjórn Gísla J. Grétarssonar.
Organisti og undirleikari er Gróa Hreinsdóttir. Jólaball í umsjón Íslendingafélagsins og Jólakirkjukaffi á eftir í safnaðarheimilinu.
I Bergen er messan og jólaballið haldið í Ytrebygda kirke, Skagevegen 7, 5258 Blomsterdalen, laugardaginn 9.des. kl.13.
Sóknarprestur íslensku kirkjunnar, sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir þjónar fyrir altari. Sönghópurinn í Bergen syngur undir stjórn og við undirleik Tönju Johansen.
Börnin kveikja á aðventukransinum. Jólasunnudagaskóli í umsjón Gígju Guðbrandsdóttur og Ólafar Halldóru Þórarinsdóttur.
Að messu lokinni verður kirkjukaffi og jólatrésskemmtun í safnaðarheimilinu.
Íslendingafélagið í Bergen sér um kaffi og saft, en gestir eru beðnir um að leggja veitingar á kaffiborðið.
Sunnudaginn 10.des. er messa og jólaball i Stavanger í Sunde kirkju, Mjughøyden 9, 4048 kl.14.
Stundina leiðir sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir prestur Íslenska safnaðarins í Noregi.
Einsöngvari er Kristín Magdalena Ágústsdóttir. Organisti er Gunnar Tungland. Kveikt verður á aðventukransinum , Haft veröur ofan af yngstu kirkjugestunum samhliða messunni.
Að lokinni messu verður kirkjukaffi og jólatrésskemmtun í safnaðarheimilinu.
Fólk er beðið um að koma með á kaffihlaðborðið ef það hefur tök á því.
Jólatrésskemmtun og jólahelgistund verður í Rukla Prinsensgate 18 3211 Sandefjord, sunnudaginn 10.des. kl.14.
Íslenski söfnuðurinn í Noregi og Íslendingafélagið Jötunn standa saman að jólatrésskemmtunn og jólahelgistund fyrir alla fjölskylduna. Margrét Ólöf Magnúsdóttir djákni hefur umsjón með jólahelgistund með klassískum jólasálmum í kapellunni.
Eftir helgistundina er lagt á jólahlaðborð og dansað kringum jólatréð.
Verið hjartanlega velkomin !

