Guðsþjónusta verður næstkomandi sunnudag, 20. mars, pálmasunnudag kl. 14 í Varden kirkju (Egersundsgata 11, 4015 Stavanger). Sr. Ása Laufey predikar og þjónar fyrir altari. Ómar Diðriksson, söngvaskáld, leiðir tónlistina í messunni. Þórunn Ágústa Þórsdóttir, Kolbrún Edda Gísladóttir og Anna Sigrún Ólafsdóttir leiða sunnudagaskólann sem verður á sama tíma.
Páskaeggjaleit sunnudagaskólans og kirkjukaffi eftir guðsþjónustuna.
Verið hjartanlega velkomin !

