
Fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 13. mars í Hellemyr kirkju í Kristiansand kl.14. (Bydalsveien 19, 4628 Kristiansand S))
Leikur, söngur og páskaeggjaleit. Biblíusaga og bæn. Altarisganga fer fram. Margrét Ólöf Magnúsdóttir djákni, Sr. Ása Laufey Sæmundsdótti og sr. Arna Grétarsdóttir þjóna. Sóknarnefnd safnaðarins kemur í sína árlegu vinnuferð á landsbyggðina og hittir og spjallar við fólk í messukaffinu á eftir.
Formaður safnaðarins ávarpar kirkjugesti.
Arna og Margrét Ólöf sjá um tónlist og leiða sálma og sunnudagaskólasöngva á léttum nótum. Benedikt Grétar Ásmundsson sér um tæknimálin.
Verið hjartanlega velkomin til uppbyggilegrar samveru fyrir börn og fullorðna.
