Guðsþjónusta í Varden kirkju í Stavanger, 20. mars, kl. 14

Guðsþjónusta verður næstkomandi sunnudag, 20. mars, pálmasunnudag kl. 14 í Varden kirkju (Egersundsgata 11, 4015 Stavanger). Sr. Ása Laufey predikar og þjónar fyrir altari.  Ómar Diðriksson, söngvaskáld, leiðir tónlistina í messunni. Þórunn Ágústa Þórsdóttir, Kolbrún Edda Gísladóttir og Anna Sigrún Ólafsdóttir leiða sunnudagaskólann sem verður á sama tíma. Páskaeggjaleit sunnudagaskólans og kirkjukaffi eftir guðsþjónustuna. Verið hjartanlega velkomin !      

Read More »

Fjölskylduguðsþjónusta í Hellemyr kirkju Kristiansand

Fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 13. mars í Hellemyr kirkju í Kristiansand kl.14. (Bydalsveien 19, 4628 Kristiansand S)) Leikur, söngur og páskaeggjaleit. Biblíusaga og bæn. Altarisganga fer fram. Margrét Ólöf Magnúsdóttir djákni, Sr. Ása Laufey Sæmundsdótti og sr. Arna Grétarsdóttir þjóna.  Sóknarnefnd safnaðarins kemur í sína árlegu vinnuferð á landsbyggðina og hittir og spjallar við fólk í messukaffinu […]

Read More »

60 ára og eldri hittast fimmtudaginn 10. mars í Ólafíustofu

Næstkomandi fimmtudag, 10. mars, hittast 60 ára og eldri á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi, Pilestredet Park 20, í Ósló. Við hefjum stundina á stuttri kyrrðarstund kl. 12:15 sem sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir, síðan borðum við léttan íslenskan hádegisverð saman. Eftir hádegisverðinn verður boðið upp á kaffi og páskalegt meðlæti. Við tökum lagið, spjöllum saman […]

Read More »

Guðþjónusta í Skjold kirkju í Bergen, 6. mars kl. 14.

Næsta sunnudag, 6. mars kl. 14:00, verður guðsþjónusta í Skjold kirkju, Skjoldlia 55, Bergen. sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir guðsþjónustuna. Sönghópurinn í Bergen syngur og leiðir almennan söng. Gígja Guðbrandsdóttir, Valur Guðjón og Ólöf Halldóra sjá um sunnudagaskólann sem verður á sama tíma. Páskaeggjaleit sunnudagaskólans og kirkjukaffi eftir messuna. Þetta er tilvalið tækifæri til þess að hitta aðra […]

Read More »

Hjóna- og paramessa í Nordberg kirkju 6. mars kl.14

Hjóna- og paramessa verður sunndaginn 6. mars kl.14 í Nordberg kirkju í Óslo.  Þema messunnar er ástin, kærleikurinn og samböndin í lífi okkar.  Predikunin verður samtalspredikun milli prests og hjóna sem segja frá reynslu sinni af löngu sambandi.Það eru hjónin Elín Kolbeins og Otto Guðjónsson og Ágústa María Arnardóttir og Hjörleifur Valsson sem þjóna með […]

Read More »

Fjölskylduguðsþjónusta í Sandefjord

Fjölskylduguðsþjónusta verður n.k sunnudag 21. febrúar kl.14 í Olavs kapelle, Bjerggata 56 í Sandefjord. Altarisganga fer fram og skírnardags barnanna sérstaklega minnst. Hvað þýðir fjólublái liturinn og hvað er eiginlega fasta? Margrét Ólöf Magnúsdóttir djákni leiðir stundina ásamt sr. Örnu Grétarsdóttur. Líf og fjör, sögur, söngur, bæn og fræðsla. Verið hjartanlega velkomin.

Read More »