Útiguðsþjónusta verður í Bruslettstølen í Geilo sunnudaginn 10. mars kl.12.
Guðsþjónustan er í samstarfi við norsku kirkjuna og skátana í Geilo. Gert verðu snjó-altari og setið verður á snjóstólum svo það getur verið gott að taka með sér setu.
Bruslettstølen er vel þekkt skíðasvæði og eru allir velkomnir jafnt fótgangandi sem skíðandi. Komið endilega í hlýjum klæðnaði.
Guðsþjónustan fer fram bæði á norsku og íslensku.
Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar ásamt börnum úr skátunum í Geilo.
Grillaðar pylsur við opin eld á eftir.
Verið hjartanlega velkomin.

