Heilsuþema á föstu II – Vertu velkomin/nn í hópinn

Hópefli 2Í tilefni af föstunni býður Íslenski söfnuðurinn í Noregi upp á útivist og hreyfingu undir leiðsögn Valdimars Svavarssonar þjálfara og ráðgjafa hjá Hugur og heilsa – ráðgjöf. Hópurinn hittist alla sunnudaga fram að páskum við Sognsvatn í Oslo.

Síðasta sunnudag var farin ganga í kringum vatnið og núna á sunnudaginn 10. mars verður farið á gönguskíði.

Mæting kl.11.30 við söluskálann „Sognsvann kiosken“ sem stendur rétt ofan við vatnið. Allir velkomnir, bæði börn og fullorðnir. Frábær aðstaða fyrir byrjendur og lengra komna.

Þú getur skráð þig til leiks og fengið svö við spurningum með því að hafa samband við Valdimar Svavarsson í síma: 98819926.