Allraheilgramessa verður sunnudaginn 6. nóvember kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló. Sérstaklega verður látinna vina og ástvina minnst og hægt verður að tendra minningarljós.
Ískórinn syngur að venju undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Organisti er Ole Johannes Kosberg.
Fermingarbörnin aðstoða við undirbúning og messuhald.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á meðan á messu stendur og kaffi og kökur á eftir í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló.
Verið hjartanlega velkomin til messu.

