Ólafíudagurinn haldin hátíðlegur í Ólafíustofu 22.október kl. 15.

14258315_10154598591685283_5684805561779028645_o-1Íslenska kirkjan í Noregi heldur Ólafíudaginn hátíðlegan á hverju ári til að halda minningu Ólafíu Jóhannsdóttur á lofti sem átti afmæli 22. október. Næstkomandi laugardag, 22. október bjóðum við alla velkomna til að halda uppá daginn með okkur í Ólafíustofu kl. 15.

Listanefnd Íslensku kirkjunnar í Noregi hefur sett saman fallega dagskrá í tilefni dagsins. Ívar Sverrison leikari verður með upplestur, Ómar Diðriksson söngvaskáld syngur og Ískórinn mun frumflytja verk eftir Gísla J. Grétarsson, „Játning Ólafíu“ með texta Ólafíu sjálfrar.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt.

Verið hjartanlega velkomin í Ólafíustofu n.k. laugardag, 22. október kl. 15.