Næstkom
andi fimmtudag, þann 10. nóvember, hittast 60 ára og eldri á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20 Osló. Við hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund kl. 12:15. Að henni lokinni borðum við saman hádegismat. Það verður boðið upp á íslenska kjötsúpu og kaffi og með því eftir matinn. Við hlökkum til að sjá ykkur.
Verið hjartanlega velkomin !
Osvald, Helga, Áslaug og Rebekka.
