Annar páskadagur í Nordberg kirkju kl. 14.
Hátíðarmessa annan páskadag kl.14 í Nordberg kirkju í Ósló. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir predikar og þjónar fyrir altari og Ískórinn syngur hátíðartón Bjarna ásamt því að leiða sálmasöng undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og organisti er Ole Johannes Kosberg.
Páskaeggjaleit
Sunnudagaskólinn verður með páskaeggjaleit og leyndardómsfulla páska-karfan rannsökuð. Söngur, leikir og páskagleði í umsjá Ruthar, Leopolds og sr. Örnu.
Kaffi verður eftir messuna að venju í umsjá Íslendingafélagsins.
Verið hjartanlega velkomin.
