Næstkomandi fimmtudag, 9. apríl, hittast 60 ára og eldri á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet park 20 Osló. Við hefjum stundina á stuttri kyrrðar- og bænastund kl. 12:15 sem sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir, að henni lokinni borðum við saman hádegismat. Það verður boðið upp á hangikjöt með tilheyrandi meðlæti og síðan kaffi á meðan við ræðum saman um málefni líðandi stundar.
Verið hjartanlega velkomin !
