Hátíðleg messa verður sunnudaginn 26.apríl kl.14 í Nordberg kirkju. Þar mun fráfarandi prófastur Reykjavíkur prófastsdæmis vestra sr. Birgir Ásgeirsson setja sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur inn í embætti prests við Íslenska söfnuðinn í Noregi. Sr. Ása Laufey var vígð til prests í Dómkirkjunni þann 22. febrúar s.l og í innsetningarathöfninni býður söfnuðurinn hana velkomna til starfa eins og hefð er fyrir og biður henni blessunar Guðs í þjónustunni. Sr. Ása Laufey mun predika og sr. Jóhanna Sigmarsdóttir ásamt sr. Örnu Grétarsdóttur sóknarpresti þjóna fyrir altari.
Ískórinn mun sjá um að leiða sálmasöng undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og Hjörleifur Valsson mun fylla sálir fögrum tónum. Organisti er Ole Johannes Kosberg.
Að lokinni messu er aðalfundur Íslenska safnaðarins og hefur til hans verið boðað með sérstakri auglýsingu. Messukaffi er að venju í umsjá Íslendingafélagsins í Osló.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á meðan á messu stendur.
Verið hjartanlega velkomin til þessa gleðidags í kirkjunni.
