Náum settu marki – Námskeið fyrir karlmenn

goalsFyrirhugað er námskeiðið „Náum settu marki“ fyrir karlmenn í Ósló laugardaginn 8. febrúar kl. 12-15 í Ólafíustofu, Pilastredet Park 20. Námskeiðið er í höndum Valdimars Svavarssonar fræðslufulltrúa og Eyglóar Sigmundsdóttur sálfræðings.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á praktískar aðferðir við markmiðasetningu, skipulag og tímastjórnun ásamt því sem farið er yfir sjálfstyrkjandi hugsun og „Mindfullness“ æfingar. Hagnýtt og spennandi námskeið sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Valdimar Svavarssyni fræðslufulltrúa: fraedsla@kirkjan.no